Fyrir trú hlýddi Abraham, er hann var kallaður, og fór burt til staðar sem hann átti að fá til eignar. Hann fór burt og vissi ekki hvert leiðin lá. Fyrir trú settist hann að í hinu fyrirheitna landi eins og útlendingur og hafðist við í tjöldum ásamt Ísak og Jakobi sem Guð hafði heitið því sama og honum.