YouVersion Logo
Search Icon

Hebreabréfið 11:24-27

Hebreabréfið 11:24-27 BIBLIAN07

Fyrir trú hafnaði Móse því er hann var orðinn fulltíða maður að vera talinn dóttursonur faraós og kaus fremur að þola illt með lýð Guðs en njóta skammvinns unaðar af syndinni. Hann taldi háðung vegna Krists meiri auð en fjársjóðu Egyptalands því að hann horfði fram til launanna. Fyrir trú yfirgaf hann Egyptaland og óttaðist ekki reiði konungsins en var öruggur eins og hann sæi hinn ósýnilega.

Video for Hebreabréfið 11:24-27