1
Fyrsta Mósebók 3:6
Biblían (1981)
En er konan sá, að tréð var gott að eta af, fagurt á að líta og girnilegt til fróðleiks, þá tók hún af ávexti þess og át, og hún gaf einnig manni sínum, sem með henni var, og hann át.
Compare
Explore Fyrsta Mósebók 3:6
2
Fyrsta Mósebók 3:1
Höggormurinn var slægari en öll önnur dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði gjört. Og hann mælti við konuna: “Er það satt, að Guð hafi sagt: ‘Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum’?”
Explore Fyrsta Mósebók 3:1
3
Fyrsta Mósebók 3:15
Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess.”
Explore Fyrsta Mósebók 3:15
4
Fyrsta Mósebók 3:16
En við konuna sagði hann: “Mikla mun ég gjöra þjáningu þína, er þú verður barnshafandi. Með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér.”
Explore Fyrsta Mósebók 3:16
5
Fyrsta Mósebók 3:19
Í sveita andlitis þíns skalt þú neyta brauðs þíns, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að af henni ert þú tekinn. Því að mold ert þú og til moldar skalt þú aftur hverfa!”
Explore Fyrsta Mósebók 3:19
6
Fyrsta Mósebók 3:17
Og við manninn sagði hann: “Af því að þú hlýddir röddu konu þinnar og ást af því tré, sem ég bannaði þér, er ég sagði: ‘Þú mátt ekki eta af því,’ þá sé jörðin bölvuð þín vegna. Með erfiði skalt þú þig af henni næra alla þína lífdaga.
Explore Fyrsta Mósebók 3:17
7
Fyrsta Mósebók 3:11
En hann mælti: “Hver hefir sagt þér, að þú værir nakinn? Hefir þú etið af trénu, sem ég bannaði þér að eta af?”
Explore Fyrsta Mósebók 3:11
8
Fyrsta Mósebók 3:24
Og hann rak manninn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð og loga hins sveipanda sverðs til að geyma vegarins að lífsins tré.
Explore Fyrsta Mósebók 3:24
9
Fyrsta Mósebók 3:20
Og maðurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð móðir allra, sem lifa.
Explore Fyrsta Mósebók 3:20
Home
Bible
გეგმები
Videos