Jesaja 33:15-16
Jesaja 33:15-16 BIBLIAN07
Sá sem lifir í réttvísi og talar sannleika, sá sem hafnar gróða sem fékkst með ofríki, sem bandar hendi gegn mútum í stað þess að þiggja þær, sem heldur fyrir eyrun til að heyra ekki ráðagerð um morð og lokar augunum til að sjá ekkert illt, hann mun búa á hæðum. Hamraborgir verða vígi hans. Honum verður séð fyrir brauði og hann mun aldrei skorta vatn.