1
Jóhannesarguðspjall 15:5
Biblían (1981)
Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt, sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört.
Compare
Explore Jóhannesarguðspjall 15:5
2
Jóhannesarguðspjall 15:4
Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:4
3
Jóhannesarguðspjall 15:7
Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og yður mun veitast það.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:7
4
Jóhannesarguðspjall 15:16
Þér hafið ekki útvalið mig, heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt, sem varir, svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:16
5
Jóhannesarguðspjall 15:13
Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:13
6
Jóhannesarguðspjall 15:2
Hverja þá grein á mér, sem ber ekki ávöxt, sníður hann af, og hverja þá, sem ávöxt ber, hreinsar hann, svo að hún beri meiri ávöxt.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:2
7
Jóhannesarguðspjall 15:12
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:12
8
Jóhannesarguðspjall 15:8
Með því vegsamast faðir minn, að þér berið mikinn ávöxt, og verðið lærisveinar mínir.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:8
9
Jóhannesarguðspjall 15:1
“Ég er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:1
10
Jóhannesarguðspjall 15:6
Hverjum sem er ekki í mér, verður varpað út eins og greinunum, og hann visnar. Þeim er safnað saman og varpað á eld og brennt.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:6
11
Jóhannesarguðspjall 15:11
Þetta hef ég talað til yðar, til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:11
12
Jóhannesarguðspjall 15:10
Ef þér haldið boðorð mín, verðið þér stöðugir í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:10
13
Jóhannesarguðspjall 15:17
Þetta býð ég yður, að þér elskið hver annan.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:17
14
Jóhannesarguðspjall 15:19
Væruð þér af heiminum, mundi heimurinn elska sitt eigið. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum, heldur hef ég útvalið yður úr heiminum.
Explore Jóhannesarguðspjall 15:19
Home
Bible
Plans
Videos