1
Jesaja 54:17
Biblían (2007)
Ekkert vopn, sem smíðað verður gegn þér, skal reynast sigursælt og sérhverja tungu, sem mælir gegn þér, skaltu dæma seka. Þetta er hlutskipti þjóna Drottins og sá réttur sem þeir fá frá mér, segir Drottinn.
Compare
Explore Jesaja 54:17
2
Jesaja 54:10
Því að þótt fjöllin bifist og hæðirnar haggist mun kærleikur minn til þín ekki bifast og friðarsáttmáli minn ekki haggast, segir Drottinn sem miskunnar þér.
Explore Jesaja 54:10
3
Jesaja 54:4
Óttast ekki því að þú verður ekki til skammar, óttast ekki niðurlægingu því að þú verður ekki auðmýkt. Þú skalt gleyma vanvirðu æsku þinnar og ekki framar minnast smánar ekkjudóms þíns
Explore Jesaja 54:4
4
Jesaja 54:5
því að skapari þinn er eiginmaður þinn, Drottinn allsherjar er nafn hans og Hinn heilagi Ísraels er lausnari þinn, hann sem nefnist Guð allrar jarðarinnar.
Explore Jesaja 54:5
5
Jesaja 54:2
Víkka þú út tjald þitt, þendu út tjalddúk þinn og sparaðu hann ekki.
Explore Jesaja 54:2
6
Jesaja 54:13
Allir synir þínir verða lærisveinar Drottins og hagsæld barna þinna verður mikil.
Explore Jesaja 54:13
7
Jesaja 54:8
Í ólgandi heift huldi ég auglit mitt fyrir þér um stund en miskunna þér með ævarandi kærleika, segir Drottinn, lausnari þinn.
Explore Jesaja 54:8
8
Jesaja 54:7
Skamma stund yfirgaf ég þig en af mikilli miskunnsemi tek ég þig að mér.
Explore Jesaja 54:7
9
Jesaja 54:9
Mér virðist þetta eins og á dögum Nóa, ég sór þá að Nóaflóð kæmi ekki oftar yfir jörðina en sver nú að reiðast þér hvorki né ógna þér.
Explore Jesaja 54:9
10
Jesaja 54:12
múrtinda þína úr rúbínum, hlið þín úr kristöllum og alla múra þína úr dýrum steinum.
Explore Jesaja 54:12
Home
Bible
Plans
Videos